
Sælaaaaaar 
Fyrsta stóra bloggið sem ég skrifa 18 ára gömul 
Ég ætla nú aðeins að fá að segja frá helginni í stuttu máli

Á föstudaginn var ég í skólanum. Fór alveg í heilan tíma
ég á alltaf að vera í 3 tímum en einn datt niður, og svo var
ég bara í korter í einum og sá síðasti varði í 3 korter. Ekki
kvarta ég...
Klukkan 5 fór ég að vinna í Nettó til 8 og skellti mér svo í
djammgallann - gamla góða djammgallann
Biggi skutlaði
mér svo í afmæli til Elmu og Ósk. Ekkert smá fínt hjá þeim
en ég
stoppaði ekki lengi því ég var að drepast í maganum svo Biggi sótti
mig og við fórum bara heim
gömlu hjónin... Bigga tókst nú samt
að vera nokkuð fyndinn
þegar ég kom var "móttökunefnd", Danni,
Stebbi og Haukur voru fyrir utan. Ég steig úr bílnum og byrjaði
eitthvað að spjalla við strákana. Svo keyrði Biggi af stað og
framdekkið BEINT á flösku sem sprakk og Biggi kom með þetta
æðislega píkuöskur
við hlógum dátt að þessu. Svo var hann
kominn svolítið lengra í burtu og ég sagði við Danna: Æjh, hann er
svo mikið rassgat og Danni öskraði á Bigga: BIGGI, ÞÚ ERT RASSGAT!
Þá heyrist í Bigga: Já... ég er endaþarmur. Hahaha, ekki oft sem
Biggi slær alla út af laginu með bröndurum 
En á laugardaginn vöknuðum við Biggi heima og þá var mamma að
baka kökur
ég og pabbi skelltum okkur í Bónus til þess að versla
gos og svona, því eitthvað verður maður að fá sér að drekka með
svona góðgæti. Hera kom til mín rétt fyrir 1 með pakka :* hún gaf
mér body shop body lotion, 3 í pakka takk fyrir og augnskugga sem
vakti upp góðar minningar :*
Um 3 leytið komu amma og afi með pening handa mér og Biggi kom
líka og við fengum okkur kökur *mm* við Biggi pöntuðum okkur líka
borð á Hereford klukkan 9 
Ég skellti mér svo í sturtu og sótti Bigga. Við vorum komin á
laugarveginn um hálf 9, þannig að við þurftum að drepa tímann
í hálftíma áður en við áttum borð
en þann tíma notuðum við
aðallega til þess að vekja hungrið 
Við fengum fínustu sæti - þjónustan ótrúlega góð og maturinn var
ALLTOF góður
Ég elska nautalundir í bernaise með frönsku mest

Eftir matinn vorum við bæði afvelta en okkur tókst þó að
klöngrast í bílinn
við fórum heim til Bigga og horfðum á
Napoleon Dynamite. Vá steikta mynd, en ég hló alveg að henni
svo
um hálf 12 leytið vorum við öll kölluð upp í ótrúlega góða köku sem
Bogga hafði bakað 
Ég fékk afmælissönginn frá Boggu, Hassa, Ester, Karó, Jay, Bigga
og Jogvan.. langt síðan það hefur verið sungið fyrir mig svona
fyrir utan fjölskylduna. Við spjölluðum svo og átum köku og við
Biggi sofnuðum um 1 leytið.
Í morgun vaknaði ég svo klukkan 10 vegna þess að ég GAT ekki
sofið. Þetta rúm hans Bigga "&$!(%"# en allavegana,
ég fór heim og fékk mér meiri kökur (þar fór átakið) og svo var
hringt í mig korter yfir 11 úr vinnunni: "Hæ, ætlaðir þú ekki að
vinna fyrir mig"? ...Ég er nú þekkt fyrir það að hafa ágæta
þolinmæði fyrir þessu ekki jafn ágætu samstarfsfólki mínu, en ég
varð bara reið í morgun.
Ég spurði þennan gæja á föstudaginn (sem hringdi)
hvort ég mætti vinna fyrir hann í dag, vegna þess að mig vantar
pening og hann sagði "æjj ég veit það nú ekki". Á hans máli þýðir
þetta víst: Já að sjálfsögðu mátt þú það, því hann hringdi í mig í
morgun og ætlaðist til þess að ég ætti að vera mætt í vinnuna.
Díses maður
En ég mætti í vinnuna eftir að hafa hundskammað hann
í 10 mínútur. Var bara að vinna til 3 og skellti mér þá í Smáralind

Ég skipti bol sem ég fékk í afmælisgjöf, keypti mér púður og
maskara og að lokum GRIFFLUR, til að vera með í BodyPump. Danni
baby að afgreiða, hvernig getur maður neitað því?
Planið í kvöld er að éta eins mikið óhollt og ég get með kæró
því að átakið byrjar aftur á morgun. Það verður skrautlegt að mæta
í herþjálfun eftir svona mikið kökuát og bjórdrykkju
, Gillz
verður ekki sáttur 
En annars þá var ég ekkert smá sátt við þennan afmælisdag
fékk líka snilldar gjafir og þakka ég öllum sem gáfu mér eitthvað

Svo núna á næstunni er ég að fara að fá bíl - Yaris og mamma og
pabbi ætla að fá sér nýjan jeppa. Maður á nú eftir að sjá eftir
kvikindinu, enda einn flottasti jeppi sem ég hef séð - án
gríns
Að lokum vil ég óska Heru og Andra til hamingju með eins árs
afmælið :* þið eigið allt það besta skilið :* og ég vil líka óska
þeim til hamingju með nýja bílinn sem þau fá á morgun. Golf árgerð
2000, silfurlitaður (luckybastards!)
Ég segi þetta samt gott í bili - heyrumst seinna?
- Brynja Eyþórsd. 
Og já eitt enn... ÉG HEIMTA KOMMENT 

Finnst ykkur að ég ætti að eiga heima á
Sólheimum ?